Hæhæ…Ég sendi jónsa i svörtum fötum nokkrar spurningar :D og hann svaraði…hérna koma þær:
Fullt nafn?

Jón Jósep Snæbjörnsson
afmælisdagur?1.júní
foreldrar?
Liv og Snæbjörn nú eða bara mamma og pabbi
besti vinur?
Rósa konan mín
maki?
Rósa konan mín
attu börn/barn?
Ég á 3ja ára pott sem heitir Trausti
besti matur?
Allt sem ég og konan mín höfum eldað undanfarið hálft ár, það er allt svo
hollt!
besti skyndibiti?
Boozt
besta veitingahús?
Nokkur góð í Reykjavík, Vox, Argentína og Sommelier svo ég nefni nokkur
uppáhalds íslenska kvikmynd?
Sódóma Reykjavík “Auður, af hverju ertu svona blá?”
uppáhalds útlenska kvikmynd?
Chocolat, nýbúinn að horfa á hana með kertaljós og nammi, ótrúlega fín mynd
með frábærum leikurum
uppáhalds bók?
Sem stendur er ég að lesa Da Vinci Code eftir Dan Brown, nýbyrjaður en hún
er svo spennandi að ég á erfitt með að leggja hana frá mér.
uppáhalds rithöfdur?
Nákvæmlega núna, Dan Brown
uppáhals íslenska band?
Erfið spurning, hef eiginlega ekki hugmynd, mjög margar góðar, Sálin,
Todmobile, Sororicide, Yucatan, Maus o.fl.
uppáhalds útlenska band?
Jafn erfið spurning, Audioslave, Queen, U2, Linkin Park o.fl., the Rasmus
eru frábærir, sömuleiðis Sugababes, Massive Attack o.fl.
þitt Idol?
Freddie Mercury
með hverjum hélstu með i Idol?
Náði ekki að fylgjast nógu vel með þar sem ég er alltaf að vinna á
föstudagskvöldum en það sem stendur uppúr idol þáttunum var þegar Anna
Katrín söng upside down, mér fannst mikið til hennar koma sem performers
nákvæmlega þá.
ertu glaður að vera kosin kynþokki íslands?
Þetta eru mjög erfið verðlaun að fá, hvað á maður að segja, mér þykir vænt
um að fólk skuli hafa kosið mig, það sýnir að ég er að ná til fólks á
einhvern hátt en ég held samt að það sé mjög hæpið að dæma kynþokka fólks án
þess að hitta það og þekkja.
áttu gæludýr?
nei
uppáhalds sjónvarpstöð?
Ég er meira fyrir sjálfvaldar spólur og DVD
sefuru i náttfötum?
Nei, alltof heitt
áttu mottó?
Carpe Diem
uppáhalds árstíð?
Sumar, Ísland er svo fallegt á sumarin, ég fíla birtuna og orkuna sem fylgir
sumrinu
uppáhalds skemmtistaður?
Heima hjá góðum vinum
Er gaman að vinna með Birgittu Haukdal i Grease?
Já, það er gaman að vinna með öllum í grease
Hvaða lag er i uppáhaldi a geisladiskinum Tengsl?
“Þú sem ert mér allt” stendur hjarta mínu næst vegna þess að það er
uppáhaldslag sonar míns og konan mín samdi textann að því með mér.
Ég þakka jónsa fyrir að svara.
Hastala Vista baby..!