Afmælistónleikar X-ins 977 Um þessar mundir fagnar útvarpsstöðin X-ið 977 10 ára afmæli sínu.

Í tilefni af því ætlar X-ið 977 í samstarfi við Dominos og Svarta kortið að halda stórtónleika á NASA annað kvöld. fram koma hljómsveitirnar Brain Police, Botnleðja, Maus, Mínus, Ensími, 200.000 naglbítar og Vínyll.

Húsið opnar kl 20.00 og eru tónleikarnir eingöngu fyrir boðsgesti, en hlustendur geta fylgst með á X-inu 977 og unnið sér inn miða á herlegheitin. Tonlist.is ætlar að senda hljóð og mynd til þeirra sem ekki búa á Reykjavíkursvæðinu eða fengu ekki boðsmiða á tónleikana.