Því sorgin ber náttsvartar rósir. Erindi úr ljóði Ernst Josepsson

Svartar rósir:

Seg mér hví þú svo dapur ert
sem áður varst glaður og kátur.
Allt finnst mér nú einskisvert
er ekki ég heyri þinn hlátur.
Því sorgin ber náttsvartar rósir.

Í hjarta mínu vex rósaviður.
Þar verður aldrei framar friður.
Hver ein grein ber þyrnafjöld
sem sálina stingur sérhvert kvöld.
Því sorgin ber náttsvartar rósir.

Litadýrð skrýðir rósastóð.
Ein hvít sem dauðinn, önnur sem blóð.
Þær vaxa hið innra og uppéta mig.
Um hjartaræturnar vefja þær sig.
Því sorgin ber náttsvartar rósir

bls. 96. Náttsvartar rósir, Ríki ljóssins