Skjálfti 1 | 2004 verður haldinn helgina 20. - 22. febrúar í íþróttahúsi HK (Digranes), Kópavogi.

Mótsgjald er krónur 3500, en þeir sem eru með leikjaáskrift Símans Internets fá 1000 króna afslátt og greiða því 2500 krónur.

Skráning stendur yfir 16. janúar - 1. febrúar (opnar 18:00). Við viljum benda fólki á að vera tímanlega í skráningu, fjöldi þáttakenda er takmarkaður og færri hafa komist að en vildu undanfarin mót. Á mótið komast aðeins 528 og hafa þeir forgang inn á mótið sem eru með leikjaáskrift hjá Símanum Internet. Fyrir aðra gildir skráningartíminn. Fyrstur kemur, fyrstur fær. Skráning mun fara fram á <a href="http://www.skjalfti.is/skraning“>www.skjalfti.is/skraning</a>

Skráningarkerfið verður eins og á síðustu mótum, fyrst þarf að skrá einstakling á mótið (einstaklingsskráning), en fyrir liðakeppnir þarf að stofna lið, og síðan skrá leikmenn í liðið. Ef það reynist nauðsynlegt að takmarka fjölda liða í ákveðnum greinum gildir sú regla, að þau lið sem eru fyrst skráð komast inn, þau seinustu ekki.

Athugið að lesa <a href=”http://www.skjalfti.is/skraning/faq.php">Skjálftaskráningar FAQið!</a>

Keppt verður í eftirfarandi greinum á mótinu:

Half-life:
- Counterstrike (5 vs 5, hámark 64 lið)

Quake III Arena:
- Deathmatch Teamplay (4 vs 4)
- Capture The Flag (5 vs 5)
- 1 on 1 (hámark 64 þáttakendur)

Warcraft III
- Frozen Throne (2 vs 2)

Battlefield 1942
- Conquest (10 vs 10 að öllum líkindum)

Enemy Territory
- Stopwatch (6 vs 6)


Fyrir hönd Skjálftap1mpa,
Smegma