Klukkan 20:00 leiða Íslendingar og Portúgalar saman hesta sína í Q3 tdm. Fyrir Íslands hönd spila arNz, Glitch, paradox (reaper) og b3nni.

Unnt verður að horfa á leikinn live á GTV (sjá GTV FAQ hérna vinstra megin á síðunni, þar eru leiðbeiningar), og að öllum líkindum hlusta á shoutcast lýsingu samhliða. Þeir sem þurfa að samstilla GTV og shoutcast hjá sér, ættu að skoða http://static.hugi.is/smegma/wolftv.html#sync

Sem sagt:

* GTV: gtv2.simnet.is:30000
* Shoutcast: skjalfti.simnet.is:1337

Unnt er að tengjast shoutcastinu með að ýta á ctrl+l í winamp, og slá inn þessa slóð. GTV er tengst eins og hverjum öðrum Q3A server; að því loknu er best að ná sér í upplýsingar í FAQinu. Shoutcastið verður 56 kbps, og því nothæft á ISDN tengingum og stærri.

Kíkið svo á #team-iceland.q3 til að skeggræða málin. :)

Góða skemmtun! :)
Smegma