MurK'KaZ er áhugaverður einstaklingur sem tekur TDM fram yfir einvígi en hann neitaði að spila 1on1 á seinasta Skjálfta því hann var “yfir það hafinn” (hans orð). Hann hefur ekki unnið 1on1 á Skjálfta þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir (tvisvar í úrslit). Hann hefur þó unnið TDM og CTF töluvert oft en var jú MVP í seinustu CTF úrslitum þar sem hann nauðgaði vörn fallen endurtekið. Hann er jú líka tvöfaldur AQFFA meistari sem væntanlega hefur hjálpað honum töluvert í ztn3tourney1 þessi ár.

Hvað heitirðu fullu nafni?

– Daði Janusson.

Hvaðan kom gælunafnið?

– Þetta er stytting á KaZoom, en ég notaði það nick í AQ2… Hvernig ég fann upp á KaZoom man ég ekki :)

Hvaða græjur notarðu?(Mús og músamottu)

– MX300 og Allsop, stálið.

Hvað ferðu marga hringi(360°) yfir löngu hlið mottunnar?(taumottur eru flestar um það bil jafn langar)

– 2 og hálfan

Núna kemur ospdm8 á Skjálfta, hvað finnst þér um það kort?

– Bara fínt, ætti að vera löngu búið að skipta út einhverju korti.
Íslenskir spilarar eru bara svo þröngsýnir.

Hvaða Íslendingur heldurðu að eigi eftir að standa mest í Rebba á Skjálfta 2?(fyrir utan þig)

– Veit það bara ekki, margir íslenskir spilarar á svipuðum mælikvarða. Kemur bara í ljós.

Hvað er uppáhalds “game modeið” þitt?(CTF, TDM eða 1on1) Af hverju?

– TDM, það er svo skemmtilegt að spila það. Krefst mikillar samhæfingar, hittni og æfingu.

Hvað er uppáhalds kortið þitt í 1on1? Af hverju?

– Bara veit það ekki, spila voða lítið

Hvaða kort af þeim 4 sem eru til boða á Skjálfta 2 fílarðu minnst?(dm6, o-dm8, ztn3 & jdm8a) Af hverju?

– Alveg sama, öll kortin eru eins fyrir mér þar sem ég spila eiginlega ekkert 1on1.

Til hvaða einvígis spilara líturðu mest upp til?(fatal1ty, Trixter, uNkind, Trixter, fatal1ty, etc.) Af hverju?

– Lít nú ekki upp til neins en ZeRo4 er owner.

Hver heldurðu að eigi eftir að vinna ESWC?
(http://www.esreality.com/?a=post&id=398685)

– ZeRo4 með comeback! Fatal1ty skítur á sig.

Hver er uppáhalds byssan þín í Q3? Af hverju?

– Rocketlauncher, airrockets marr.

Á hvaða byssur notarðu drawgun?(1 eða 2)

– Nota drawgun 2 á öll vopn fyrir utan lightninggun, þar er ég með 0.

Einhver lokaorð?

– 1on1 nei.

Fyrirtak, fyrirtak.
Ravenkettle