Jahérna…margt finnst mér merkilegt en þó er annað merkilegra. Ég sendi einn dramatískan póst á PhD um að ég sé hættur og nefni sem (aukaástæðu) að ég hafi fengið skítkast frá fólki, það var ekki einu sinni aðalástæðan :) og allt í einu gengur sú saga að fólk hafi verið að hrella mig lol! Ég nefndi hvaða fólk ég umgengist en ég sagði aldrei að þeir ákveðnu aðilar hefðu séð um skítkastið og svo er þessu bara klínt á TBJahve félaga minn. Já hér er leiðrétting TB kallinn hefur ekkert verið með meira skítkast á PhD en hver annar maður á landinu! Ég biðst afsökunar ef ég hef látið svo líta út. Ég segi bara stígi sá fram sem hefur aldrei verið með skítkast á neitt clan hér í quake heiminum og kasti fyrsta steininum ! Jahérna og í framhaldi af þessu er strax byrjað að tala um mig sem clanhóru LOL ….já ef ykkur líður betur þá er ég alger clanhóra, verð alltaf clanhóra og mun alltaf hafa verið clanhóra en kemur einhverjum það við nema mér. Mér langaði bara að segja í lokin að eftir þetta mál þá er ég hneykslaður Örvar að þú skulir hafa troðið þessu á netið þ.e. því sem ég sagði….þetta þýðir einfaldlega að ég get ekki treyst þér eins og ég hélt að ég gæti. Þakka þér fyrir tímann sem ég var í PhD og gangi þér sem best í framtíðinni.

Kveðja Barak