Nú verð ég að segja að ég hef fengið mig fullsaddan. Eftir þessa fyrstu Ratbot umræðu sem ég man vel eftir hélt ég að Gulag væri orðinn geðsjúkur, sakaði okkur um RatBot notkun án þess að hafa nokkuð demo og fullyrti að við værum aumingjar og landeyður sem notuðum svindl. En svo vildi þannig til að ég átti demo af leiknum og tókst að hreinsa mannorð mAIm. Upp úr þessu spratt mikil umræða og voru sterkar raddir innan mAIm sem vildu að það væri heimtað að nú skyldi annað hvort banna mAIm fyrir ratbot notkun eða taka RCon af Gulag (eftir því sem fólki fannst af demo). Eftir þó nokkur rifrildi var ákveðið að pósta bara “Gulag heldurðu ennþá að við svindlum já/nei ?” og svarið var “nei” og málið var úr sögunni.

Núna er svo komið að Gulag er kominn með sér heimasíðu þar sem hann er gjörsamlega að fara hamförum um þetta nýjasta svindl, sem útskýrir þetta óskiljanlega að hann sé ekki að vinna öll round í AQ. Nefa svindlið alræmda og að sjálfsögðu var mAIm maðurinn aNaLpAiN að nota það, hver annar. Núna hefur hann demo frá sínu sjónarhorni þar sem HANN er með nose dæmið í gangi og að sjálfsögðu er alltaf jafn gruggugt að vera frosjáll og skjóta einhvern. Gulag þetta eyðilagði að miklu leiti fyrir mér AQ þetta ratbot dæmi, ég var hræddur við að ná headshot því þá öskraði einhver “RatBot” bæði á mig svo og aðra meðlimi mAIm.

Þannig núna get ég ekki annað en efast um að Gulag valdi þessum skyldum sínum sem RCon á skjálfta servers. Og þar sem það voru AQ menn sem gáfu Gulag völdin með stuðningsyfirlýsingu á korkinum gamla, ætla ég að stefna til hisn sama hérna, Þannig bæði andstæðingar og stuðingsmenn Gulag póstið [NT] póst hérna þar sem þið veljið hvort hann eigi að vera RCon ennþá eða hvort hann hafi eyðilagt fyrir sjálfum sér með svona fáránlegum hlutum og nafnaköllum.

Btw Gulag mér finnst fínt að laga svindl go finna þau, en ekki vera með getgátur hver lítur út fyrir að vera að svindla og hver ekki, og hvernig væri að fara að æfa sig að hitta í staðinn fyrir að specca í 3 daga og vera svo hissa á að vera ekki efstur.

og já btw spurning er “Á Gulag að vera RCon áfram?” ég segji "NEI[NT]"

Free thinkers are dangerous