Jæja, þá er komið að Boglis 2! Það verður haldið í iðnskólanum í rvk og áætlað er að hafa um 60-80 manns. Það verður engin skráning þannig að fyrstir koma fyrstir fá! Kostar 500 kall (sem er ekki neitt:) og helstu leikir verða Q3, AQ2, CS, Starcraft og fl. Við verðum með einn dedicated server fyrir CS og verið er að redda öðrum fyrir Q3.

Það sem þarf:

Tölva og allt tilheyrandi
10/100 netkort
3-4m Twisted Pair snúra
FJÖLTENGI!!!!
Góða skapið.
Mæting klukkan 16:00 í matsal skólans og er áætlað að byrja kl. 20:00 og stendur þetta yfir alveg til sunnudags kl. 14:00, STANSLAUST!

Frekari upplýsingar fást í síma:

697-4579 - Croax
868-5656 - Sinai