Ef þið viljið vita afhverju ég sé bestur í Quake 3 þá skal ég
segja ykkur það. Það var þannig að það var mót núna fyrir skemmstu
í Englandi sem ég tók þátt í. Það var haldið í London og tóku
hvað.. ætli það hafi ekki verið í kring um 60000 keppendur.
Nú þetta fór þannig fram að þetta var skipulagt í einum 5 eða 6
íþróttahúsum víðsvegar um borgina og keppnin stóð yfir um eina
helgi frá 8 á morgnanna til 10 á kvöldin þannig að það var farið
að draga af manni undir það síðasta en samt sem áður stóð ég uppi
sem sigurvegari mótsins og þykir það gaman sérstaklega að fá
að taka þátt í svona gríðar stóru móti. Þetta var alveg geðveikt
og maður hitti sko marga ég get sagt ykkur það.. gríðarleg stemming
og mikið fjör langt fram á nótt öll kvöld. En semsagt ég er bestur
og er stoltur af því.
Ég vildi bara fá að deila með ykkur þessari frábæru reynslu, hún
gleymist seint.