Þannig er mál með vexti, að ég fann lítið sniðugt forrit á vefnum, sem gerir manni kleift að breyta litnum á nickinu manns í aq.
Ég kalla þetta forrit x***a, því þetta forrit gæti hugsanlega verið notað til þess að svindla, og ég vill ekki breiða nafninu út.

Hvernig líst p1mpum á þetta forrit? er þetta leyfilegt á skjálfta serverum?
Ég veit að það er einhver innbyggður stuðningur í þessu til að lama þetta serverside (með dmflags) - ég var td að spila á s5 í gær með þetta, virkaði allt venjulega - en fór síðan á s4, og fov var komið í 120. Ég hinsvegar lagaði configgin þannig að það eina sem er virkt eru litirnir í nafninu.