Paul Steed er maður með sterkar skoðanir. Hann var einmitt rekinn frá id fyrir þessar sterku skoðanir. Í viðtali við Stomped vill hann sem minnst segja um id, en segist viss um að nýji Doom muni rokka og óskar þeim velfarnaðar. Hann segir einnig frá fyrirætlunum sínum um nýtt fyrirtæki, Pummel studios.

Mín spurning er, haldiði að Steedster muni meika það?

Persónulega held ég að þessar rosalegu plön (þrír leikir á fimm árum) séu of mikið fyrir mann sem aldrei hefur sjálfur hannað leik, þó svo að hann hafi tekið þátt í að skapa nokkra góða.

-normi
-nomaad