ég var að skoða nokkur demó frá skjálfta núna áðan, og finnst mér vægast sagt gróft hvernig sum lið nota gallana í aq til framdráttar. Þar ber helst að nefna hið fræga “see through” , þ.e. ef einn spilari stendur uppvið kassa geta hinir séð í gegn og jafnvel gegnum næsta vegg líka. Mín spurning er, er ekki hægt að laga þetta (með nýjum exe fæl?) á einhvern hátt, þar sem þetta var tæplega hugsað sem partur af leiknum.
[DON]TazZman