Nú þegar ég er nýr í Quake III þá ætlaði ég að forvitnast um hvað er góður rammafjöldi í Q3? Ég er að keyra Q3 í 640x480 og er með allt skrúfað niður og er að ná 122,4 römmum á sekúndu í demo001, er þetta viðsættanlegt eða þarf ég að fá mér vatnskælingu :Þ (ha, ég, geðveikur, neeeeei!)

Svona í lokin. Hvað er hæðsti rammafjöldi á sekúndu sem þið hafið séð?

P.S. Ég er með Abit BP6 móðurborð með tveimur Celeron366 yfirklukkaða í 500~533(eftir þörfum), Geforce 1(Asus 6600 deluxe tbp) og 192Mb í innra minni