Mér fannst ágætlega að skráningu S4 í þetta sinn, en það er eitt sem mér finnst athugavert.
Það er sú staðreynd að þegar maður skráir sig, og fer yfir á síðu tvö eða þrjú, þá var passwordið manns á þeirri síðu. Ég held að flestir hafi ekki tekið eftir því og ýtt bara á áfram. Ekki svosem að passwordið skipti lykilmáli, en þetta er mjög pirrandi. Svo að maður fer smellir á táknið til að láta senda sér póst með passwordinu, og það stendur: “Nú er búið að senda póst til þín með lykilorðinu”
Þessvegna var ég svona að pæla…hvenær í fjandanum á maður að fá þennan póst?!
Ef einhver gæti veitt mér upplýsingar varðandi það væri það ágætlega þegið.