Ef þið hafið einhvern tíman prufað að spila á darkmatch servernum þá hafið þið kannski komið auga á það að ekki er hægt að spila ef gl modulate er sett fyrir ofan eitthvað ákveðið (er ekki viss hvað en veit að 2 virkar). Hvernig væri nú að setja þetta einnig á alla hina serverna?

Það er alveg hrikalegt hve margir nota þetta og þannig sniðganga hönnun margra mappa. Það á að vera hægt að vera í skugga og enginn sjá mann, það gerir hlutina bara meira spennandi og hectic.

gl modulating er í sjálfum sér svindl og fólk ætti ekki að leggjast svona lágt, þetta hefur reyndar verið svo lengi í gangi og svo algengt að flestir telja þetta líklega ekki vera svindl lengur. Kominn tími til að eitthvað verði gert við þessu.

p.s. Svo skil ég ekki hvernig fólk getur spilað með gl sett hátt, leikurinn verður svo hrikalega ljótur.