Fengið af mbl.is

Eignast tölvuleikir áhorfendur um allan heim?
Þeir, sem gaman hafa af tölvuleikjum, sitja oftast nær einir og yfirgefnir yfir þessu áhugamáli sínu inni í lokuðu herbergi en hugsanlegt er, að á því sé að verða breyting. Það er nefnilega ekki útilokað, að því er fram kemur á vefsíðu BBC, breska ríkisútvarpsins, að tölvuleikir eigi eftir að komast í hóp þeirra íþrótta, sem draga að sér flesta áhorfendur.
Auðvelt er að gleyma sér í tölvuleikjum, komast inn í annan heim þar sem mönnum er umbunað strax fyrir færni sína á lyklaborðinu eða með stýripinnann, en gallinn er bara sá, að öll þessi leikni er á svo fárra vitorði. Jafnvel í leikjum þar sem leikendur eða stjórnendur eru tveir eða fleiri er aðdáenda- og áhorfendahópurinn mjög lítill. Þetta er þó allt að breytast.

Tölvuframleiðendur eru nú að setja á markað hugbúnað, sem fært getur tölvuleiki, sem margir taka þátt í, til þúsunda og tugþúsunda áhorfenda. Ekki er óhugsandi, að á næstunni muni menn gera sér ferð á krána á laugardegi til að horfa á tölvuleikjakeppni í stað ballskákar eða annarrar slíkrar afþreyingar.

Ýmsar sjónvarpsstöðvar hafa sýnt þessum hugbúnaði mikinn áhuga og fyrirtæki, sem standa fyrir keppni af ýmsu tagi, eru þegar farin að nota hann.


Barátta tveggja liða
Einn af fyrstu tölvuleikjunum af þessu tagi, Half-Life, snýst um tilraunir vísindamannsins Gordons Freemans til að sleppa út úr rannsóknastöðinni Black Mesa. Þar hafa farið fram tilraunir, sem enda með ósköpum, og stöðin er orðin yfirfull af hinum skelfilegustu skrímslum. Þessi leikur kom fyrst á markað 1998 og hefur verið mjög vinsæll vegna þess, að hann gefur leikendum kost á að berjast hver við annan. Tvö lið geta til dæmis skipt þannig með sér verkum, að annað er hryðjuverkamenn en hitt þeir, sem reyna að stöðva þá. Með nýja hugbúnaðinum er síðan unnt að leyfa tugþúsundum áhorfenda að fylgjast með viðureigninni.
Nú er stefnt að því, að um 25.000 manns geti fylgst með heimsmeistarakeppninni í tölvuleikjum í desember næstkomandi, en líklega verður það aðeins byrjunin á afþreyingu, sem að lokum mun ná til áhorfenda um allan heim.
<br><br>“Facts are stubborn things”