Eins og menn eflaust vita, þá gengur ýmislegt á í herbúðum counterstrækara. Og ég skil afhverju. Konni (zlave) samstarfsmaður minn og pimp sýndi mér myndband af þessum helstu 20 svindlum sem þar eru notuð.
Satt að segja ofbauð mér það :)

Samt held ég að við sem spilum AQ2 erum í miklu betri málum en þeir. Við erum með varnir innbyggðar í þjónana gegn flestum gerðum svindla. Helst held ég að menn noti nef (spiked skins) eða wallhacks.

Ég get alveg hugsað mér að taka “virkari” þátt í að góma svindlara en ég hef gert undanfarið. Ég get ekki endalaust haldið áfram að byggja inn í serverana anti cheat varnir því bráðum verður ekki hægt að spila. Hver kannast ekki við þessi vandamál við að tengjast serverunum eða að skipta milli porta ?
Þau eru vegna nýrra M4 scripta sem serverarnir eru að fylgjast með.

Því spyr ég. Vilja menn að ég taki upp “reign of terror” á serverunum og reyni að bösta nosepak / wallhack svindlara ?

Það myndi t.d. innifela að ég stuffi skipanir á fólk til að poppa upp scoreboard og taka svo screenshot og krefjast þess að viðkomandi sendi mér screenshottið strax.
Komi það til mín strax og engin svindl eru sýnileg, allt í góðu.
Komi það ekki fær viðkomand lífstíðar bann, má aldrei koma á skjálfta og ef klanið hann ekki rekur hann úr klaninu er það líka bannað (Þetta eru CS viðurlögin óbreytt).

Hvað segjið þið leikmenn um þetta ?