Iss. Þessi korkur væri alveg nothæfur ef ekki væri fyrir þessi skringilegu icon sem ég botna ekkert í (smámyndir). Getur einhver sagt mér _hvaða tilgangi_ (öðrum en að gera þetta svona sætt) þessar smámyndir eiga að þjóna? Holy moly. Ég a.m.k. skil þetta ekki. <br>Og eitt til umsjónarmanna hugi.is: Vinsældir Skjálftakorksins (svo við köllum þetta einu nafni) hafa minnkað ansi dramatískt eftir að hugi.is varð til. Væri ekki ráð að færa þetta eitthvað nær fyrra horfi? (ef maður lítur framhjá þeirri staðreynd að öllum sem geta breytt þessu er nákvæmlega sama). :( Leiðinlegt. Ókei, þessi Skjálftakorks-nostalgía er orðin þreytt, þannig að ég er ekkert að þenja mig meira.