Sælir.

Ég var að spila inni fyrir skömmu í dag og á móti JBravo og einhverjum öðrum úr QNI ásamt tveim þrem öðrum og varð frekar hissa á að vera drepinn í einu skoti langsum yfir stóra opna svæðið í Team JUngle,,,,,,,með haglabyssu!! Ég hélt þetta vera “fluke” skot hjá JB en heyrði þá einhvern skrýtinn wav fæl fara í gang með mikið kvikindislegum hlátri. Ég er búinn að spila aq2 lengi og veit fyrir víst að þessi hljóðfæll er ekki í startpakkanum. Svo leið á spilið og ég var tekinn í eyrun með haglabyssu yfir þvert og endilangt borðið eins og hún væri orðinn sniperriffill!! Svo var líka fyrðulegt að þegar ég skipti yfir í haglabyssu líka, þá var hún nánast gagnslaus gegn þeim félögum í QNI. Ég vil bara að spyrja hvort þessir menn eru að misnota aðstðu sína við Símnet og aðgang að skjálfta serverum til að' implementera einhverjum persónulegum breytingum til að gera stöðu sína betri í leiknum?? Ekki reyna að segja mér að ekkert hafi verið búið að fikta við serverinn þarna, því að ég þekki þetta dót of vel til að trúa því að svo sé ekki!! Til samanburðar má nefna að ég var að enda við að spila á BEER núna fyrir mínútum síðan og þá allt í einu var haglabyssan orðin gagnslaus og M4 allt í einu orðið vopnn með MP5 nákvæmni.

Ég fer hér þess á leit að þetta dæmi verði rannsakað og það niður í kjölinn, vegna þess að ef einhverjir ratar eru að vinna hjá símanum sem stunda svona vinnubrögð þá skal ég sjá til þess að þeir gleymi mínu nafni á næstunni!! Það er kominn tími til að slá grasið og ég er ágætis sláttuvél!!

Ekki taka þessari fyrirspurn létt. Þetta ER alvarlegt mál og það er betra fyrir ykkur að vanda vel svarið!!
Af hugadraslinu