Er einhverjum fleirum að finnast það en mér. Ég er miklu oftast að festast í þessum leik heldur en í doom 3. Reglulega í þessum leik þá er eins og ég bara skelli á vegg og kemst ekkert áfram. Svo þegar ég er loksins búinn að koma mér áfram eftir að hafa lesið walkthroughs, hugsað um að svindla og langað að brjóta einhver húsgögn þá líður stuttur tími og þá kemur annað eins vesen. Ég er að spila á medium en finnst stundum eins og leikurinn bara skyndilega verði eins og að ég sé að spila á hard difficulty. Þannig ef einhver getur hjálpað mér að komast í gegnum fyrsta bot borðið þá væri það mjög gott.