Ég er í Doom 3 og er í helvtíti og á að ná í soul cube.

Svo er ég kominn þar sem ég á að berjast við eitthvað risastórt skrímsli. Fyrir þennan bardaga kemur svona myndband sem sýnir soul cube ef ég man rétt.

En allavega, fyrir ofan þetta skrímsli eru fljúgandi ljósastaurar, og það er alltaf einhver rödd að segja: “Kill the seekers and the gurdian…..” svo heyri ég ekki meira.

Svo prófa ég að drepa ljósastaurana og þá er eins og skrímslið viti ekkert hvað það á að gera, það hoppar bara og það koma eldboltar frá því. Fyrst þegar ég drap 3 fyrstu ljósastauranna hélt ég að ég gæti bara farið og drepið skrímslið eða ég væri bara búinn með þennan kall og þyrfti ekki að hafa meiri áhyggjur af honum, en svo var ekki það koma alltaf nýjir ljósastaurar.

Svo ég spyr hvernig drep ég þessa skepnu?