Ok, núna hafa gengið hér á miklar umræður um botta á milli mAIm og ZooM, og hafa orð fallið frá báðum aðilum sem eru full hörð. Þetta byrjaði allt með að talað var um bottanotkun á servers, og rifjaðist þá upp fyrir mér að ég hafi verið sakaður um slíkt af sama manni og skrifaði greinina. Og spurði þá “Ertu að meina okkar clanmatch” og tók skýrt fram að ef svo væri vildi ég að hann talaði beint við okkur en væri ekki að rífast hér á korkinum (bauð meira að segja að hann hringdi í mig í póstunum sem fylgdu á eftir). En þetta hefur eitthvað misskilist (efast um að hann hafi póstað af mannvonsku) og hann skrifaði “já fyrst þú minnist á það voru 2 mAIm menn að nota bot í umtöluðum leik” og bregst ég vondur við, enda hef ég aldrei séð dæmi þess að menn í jafn háu metorði og Gulag (rcon) hafi sakað aðra spilara um Bot notkun af nokkurri alvöru. Þessu svara ég með reiði og húmor sem eitthvað hefur skilað sér illa til viðtakanda, og læt flakka með þessu Demo, sem mér þykir sanna nokkuð vel að engir aimbottar hafi verið notaðir í tilteknum leik. Ýmsir menn mAIm láta orð flakka í garð gulags en ég ætla ekki að tíunad það hér. Næsta sem ég veit les ég “Afsökun” frá Gulag og hugsa með mér “jæja flott þá er þetta afstaðið” en þá er þetta kaldhæðnisbréf sem kyndir enn meira á eldinn. Ok núna vill ég fá eitt svar, ég er ekki að sýna neinn hroka núna, og ætlast til að fá hrokalaust og hreinskilið svar. Gulag, sérðu einhvern mann vera að nota aimbot í þessu demo ? Ef ekki þá mælist ég til þess að þetta mál verði lagt niður og vonandi að vinaböndin geti gróið aftur þrátt fyrir fallin orð. Ef þú hinsvegar ert ennþá á því að mAIm sé að nota bot þá vill ég fá sannanir fyrir því og ekki meiri rógburð takk. Hitt er annað mál að ég er líka viss um að aimbot hafi verið notaðir á servers einhvern timan, en ég er bara þarna til að skemmta mér og huxa bara “pff hann hefur aldrei eftir að vinna mót”. Nú hendi ég boltanum yfir til þín Gulag og vona að þú sért nógu mikill maður til að viðurkenna að þú hafir haft rangt fyrir þér í þessu tilfelli, ímyndaðu þér bara ef við hefðum ekki demo. Þú ert maður í frekar háu áliti í AQ heiminum og ef þú segjir “þeir nota Aimbot” og við getum ekki afsannað það, þá ertu kominn með ansi vont orð á okkur. Ég vona að þessi þráður geti verið sá seinasti í þessu máli og að enginn aðili muni öskra eitthvað heimskulegt í þessum þráð (á við bæði mAIm, ZooM og aðra á korkinum).<br><br>“Free thinkers are dangerous”