Jæja, nú þegar modin eru farin að koma fyrir doom þá langaði mig að benda á LMS, eða Last Man Standing.
LMS er mod þar sem spilarar standa saman á móti hjörðum af skrímslum og reyna að lifa af. Enn sem komið er er modið ekki full-klárað, en samt sem áður er komi út einskonar sýnishorn af því sem vænta má.

Hér má finna þetta mod:



Í þessu borði er maður einn og byrjar aðeins með keðjusög og skammbyssu. En eftir því sem öflugri skrímsli taka að streyma inn þá fær maður öflugri vopn.

Þetta mod er algjör snilld og ekkert smá gaman að leika sér í þessu. Þó svo að þetta virðist vera MJÖG erfitt, þá er mögulegt að sigra þetta…mér tókst það loksins rétt áður en ég skrifaði þennan kork…enjoy.