Málið er að ég og nokkrir vinir mínir erum nýbyrjaðir að spila Quake þrjú af einhverju viti og það verður LAN um næstu helgi. Ég sem er venjulega langklárastur af okkur í öllum tölvuleikjum get ekki rassgat í Quake III. Það liggur við að ég verði lélegri eftir því sem ég æfi mig meira(mér finnst það allavega). Vinir mínir eru að spila í Nightmare með léttu á meðan ég er virkilega montinn þegar ég vinn í hardcore. Getið þið ekki hjálpað mér eitthvað? Kennt mér einhver svona leynitrix eða eitthvað svoleiðis sem alvöru quakarar nota? Eða bent mér á einhver svona guide? Gerið það. Ég myndi meta það mikils. Ég bara get ekki horfst í augu við það að vera lélegastur.