Ég er lengi búinn að vera að leita að tölvuleik sem heitir MS flight simulator 4 eða 5. Þessir leikir eru báðir útdauðir í tölvubúðum, þar sem að þeir selja bara nýja leiki. Ég hef dýrkað þennann leik frá því að ég var pínkulítill hnokki á 386. ég hef verið að leita að þessum leik á netinu og hef komist að því (mér til mikillar skelfingar) að það er hvergi hægt að dánlóda honum eða kaupa hann!
Þess vegna er ég kominn hingað enn einusinni. Eins og allir vita þá eru kveikarar flestir fæddir fyrir framan tölvuskjáinn og eiga þessvegna nánast alla gamla leiki uppí hillum. Ef einhver vildi vera svo góður að kíkja uppí hillu (eða undir rúm) og gá hvort þeir eigi ekki eins og eitt eintak af þessum leik, zippann og senda mér í e-mail ( <a href=“mailto:gnarr@mi.is”>gnarr@mi.is</a> ). Þá lofa ég að pirra ykkur ekki oftar með leiðinlegum póstum eins og þessum!

- Gnarr ( gnarr@mi.is )