Ég hef verið að velta þessu doldið fyrir mér. Hvaða bottar eru bestir? Ég er með óskaplega lélega internet tengingu (og reyndar mömmu líka), og þeir bottar sem ég hef prófað eru allir óskaplega lélegir, ef maður vill lifa nógu lengi til að geta séð bottana þá eru þeir svo heimskir að þeir festast hvar sem er. En ef maður stilli þá til að þeir festist ekki bakvið allann andskotann þá er maður skotin á innan við 1. sekúndu. Eru virkilega ekki til neinir bottar sem er eitthvað örlítið vit í. Ég veit að þessir bottar sem ég er með eru einhverskonar ltk/cfg bottar sem eiga að læra af manni(svo að þeir festist ekki og þannig) en það tekur bara svo langann tíma að maður er löngu komin með ógeð af því borði sem maður er búinn að vera að kenna bottunum í. ÉG viður kenni alveg að ég er ekki góður quake spilari, en ég ætla ekki að sætta mig við að ég geti ekki fengið botta við hæfi.

Ef þið hafur einhverja hugmynd um hvar ég get fengið botta sem er eitthvað “vit” í, postið þá url hénna á huga.

-Gna