Well, keppnisserverarnir á skjálfta voru skringilega laggaðir. Virkaði þannig að skotin komu þónokkuð á eftir, og gildi það jafnt fyrir Sniper og Auto vopn. Þegar maður spilaði á öðrum serverum sem keyrðu PGBUND 1.24 (sem er það sem JB byggir ofan á, hefur ekkert breytt neinu í sambandi við vopn að mér skilst), sem menn voru t.d. að hosta á vélum sem þeir voru að spila á var þetta ekki svona laggað.

Hélt fyrst að þetta væri bara ‘paranoja’ í mér, en sá síðan að flestir í mínu liði lentu í þessu, auk þess sem ég talaði við fleiri menn úr öðrum clönum sem tóku eftir þessu, sögðust samt ekki allir taka eftir þessu.

Ég ætla nú ekki að kenna þessu um töp eða sigra okkar, og þetta er ekki meint sem ‘bitch’, en þetta er meira ábending til p1mpa í von um að þeir lagi þetta fyrir næsta skjálfta.

{HJ}Ibe