Ég veit að þið eruð örugglega orðnir leiðir á að svara einhverju svona í þúsundasta skipti en ég verð að fá hjálp með eitt.

Mig langar að fara að spila Quake 3 á netinu og fékk leikin lánaðan hjá vini mínum. Þegar ég var búinn að því náði ég í pointrelease_132 og installaði því í Quake 3 möppuna, síðan náði ég í OSP dótaríið og Winzipaði henni í OSP möppuna. Og náði síðan í öll borðin. Síðan fór ég í The all seeing eye og inn á skjalfta og þá connectast ég og þegar að ég er alveg að vera kominn inn búið að hlaðast inn borðið og allt þá dett ég út og það kemur bara:

Server disconnected - unpure client detected
Invalid .PK3 files referened!

Plz getur einhver hjálpað mér.