hefur einhver orðið var við það að ég sé dónalegur, með persónuleg skot á einhvern með einhverja alvöru á bak við(* ég kem að þessu betur á eftir) , það versta sem ég kalla einhver er “kúkur” “fly monkey boy” “die pig boy” og þetta er í gríni sagt og ALLIR sem ég segi þetta við, skilja það, ég segi þetta ekki við alla einmitt vegna þess að ég veit að sumir tækju þetta sem eitthvað meira en spaug.
ég er ekki dónalegur en aftur á móti hef ég það í mér að vera viljandi leiðinlegur við suma, persónuleg skot eru ekki eitthvað sem ég stunda, annað en sumir.
Svo við komum að því þegar ég kallaði þig (scope) fífl, þá var ég að sjá hvort þetta væri einstefna í þessu hugarfari sem þú ert svo viljugur að minna á þegar þú ert hefur móðgað fólk, og þú biður fólk að taka þig ekki alvarlega á netinu, megi það vera hér á korkunum eða á irc. Þú greinilega vilt vera tekinn alvarlega stundum, en til þess að ég (og án efa fleiri) taki þig alvarlega, verður þú að haga þér á einn hátt, ekki skipta um skoðun eins og maður galinn og þegar fólk commentar á það, að segjast bara vera “fucka í þeim”.
Einnig vil ég benda á að þú þekkir mig ekki neitt, að segja að ég sé illa innrættur spilari, það er persónulegt skot á minn karakter. Eitthvað sem þú getur einungis gert ef þú þekkir mig og mínar ástæður fyrir leiðindum (ekki dónaskap) í þinn garð, og það er greinilegt að þú veist lítið um þær.
Það að renama í leiknum var til að flýta fyrir, því við í sífellu vorum að segja að við værum ekki menn í camp, svona fáir inni og seint um kvöld, ég geri mér grein fyrir að ég var að gera eitthvað sem ég átti ekki að gera, og biðst afsökunar á því. Þessar nick breytingar fyrir utan að segja hvar einhver var í X lífpunktum, hafa hinsvegar ekkert gildi imo, þau voru til að flýta fyrir leiknum, ekki að það sé afsökun en það er hins vegar ekki mikill glæpur, þetta er oft gert ef einhver hefur dottið út, eða er ekki við tölvuna, (smá spauginnskot) og ég var bara ekki viss um þig þarna efst á urban kortinu.
Svo uppá skemmtanagildi þá sagðir þú að ég rifi meira kjaft en spila, minnir að mappið hafi verið TJ, og ég var efstur að fröggum :) djöfull hlýt ég þá að rífa mikið kjaft.
nota bene þá geri ég greinamun á að rífa kjaft, og að vera leiðinlegur. Mér sýnist þú ekki gera það, leiðréttu mig ef ég hef rangt fyrir mér.
og að lokum þá vil ég segja að ég bíð í ofvæni eftir að þú farir í þín gögn og finnir öll þau comment þar sem ég kalla einhvern ljótu nafni (og það kemur barasta ekki fyrir nema ég muni eitthvað illa)

ps. að vera illa innrættur [spilari] er þó skárra en að vera illa innrættur. {— misskildu þetta nú eins og þér er einum lagið.
<BR