Ég spyr því eftir að gömlu korkarnir fóru að deyja út og enginn nýr hefur tekið upp hanskann að fullu. Ég svaraði þessu pósti hjá siemens eða hvað hann heitir, nenni ekki að gá :) og er að vona að það dragi fram einhver skemmtileg svör í ljósið. En nú þegar ég hef lesið nýju siðuna hjá hux og hún er bara nokk flott eins og flest sem þeir gera, vinna iq osfrv., þá hef ég tekið til mín ramble hjá honum primo(minnir að það hafi verið hann) og ætla að hætta öllu þessu væli og kvarti og kveini undan laggi og svoleiðis. Ég veit að ég hef verið að fara í pirrur á fólki og ætla að hætta því í spiluninni sjálfri og vona að fólk nenni að umgangast mann á serverum þótt þeir muni án efa sakna “fkjafkldjf kl” , “bs” , “djos laggy shitty server” og fleiri gullmola commentum sem koma fram í óhóflegu magni hjá manni eða komu fram öllu heldur. Ég veit að smegma hefur tekið þetta til sín (held það alla vega, þó svo hann sé týpan sem segi “nei nei ..allt í góðu” og cudos fyrir svoleiðis framgöngu) og vona ég að enginn skaði sé skeður á hans án efa óheflaða áliti á minni persónu. (nota bene þá er ekkert að gera í vinnunni hjá mér). Vil ég endilega taka það fram að ég er voðalega fljótur að stökkva uppá nefið, en því fljótari að lenda aftur, vandamálið snýst í raun um þennan tima sem ég næ að halda jafnvægi uppá nebbanum og verandi þessu geipilegi typari(NOT) þá næ ég alltaf að koma að einhverjum leiðindum. Ég hef gaman að leiknum þó svo það komi kannski ekki fram í þessum gullmolum mínum svokölluðu, ég ætla að hemja puttana rétt eftir mótherja fröggin og sjá hvort ég geti ekki bara spawnað því mun fyrr og byrjað að mg dónann ;) nú eða gefa honum spawnfraggið aðeins fyrr ef þetta mg plan rennur í sjóinn.<br>I öðrum málum þá vil ég endilega koma fram mínum skoðunum á þessu vesen/leiðindum sem komið hafa upp þegar fólk er að fara á milli clana. Regla sem mun eðlilega aldrei vera í heiðri höfð en væri bót á núverandi málum hljóðar svona, -Clönum er bannað að recruita, hvaða spilara er frjálst að skipa um clan ef hann vill en þá endilega tala við sína m8s um af hverju hann vilji skipta um clan og gefa góðar ástæður.- <br>Ein spurning til deus og fatal t.d. ekki að ég sé að skjóta á þá á neinn hátt, en hér kemur hún, “af hverju hættu þið í ykkar clani phd ?” og af hverju völduð þið hux. Ef þið eruð ánægðir þar sem þið án efa eruð þá “kewl great” ekki málið en að fara úr clani sem var mjög fínt. En þar sem clana fjöldi er ekki svo mikill hér á skerinu okkar þá verður þetta frekar litlaust þegar einu clönin sem standa eftir eru hux murk ice og k. Satt það verða alltaf einhver minni clön sem geta staðið í þeim en eins og sést hefur á öllum skjalfta mótum þá eru þessi 4 clön næstum alltaf með efstu 3 sætin. Við hljótum að sjá að þetta verður á endanum frekar þreytt, tek sem dæmi um clan sem hefði getað haldið áfram og með æfingu orðið með þeim bestu, SUKK , komnir í murk og Genesis núna, og í einhver önnur líka en þau mega síns lítið á móti þessum stóru clönum. Eitthvað sem ég vildi sjá væri að sjá eitthvurt lið í þessum stóru ice murk hux segja sig úr claninu á friendly nótum og stofna nýtt clan, hvað væri að því, ég ætla að vona að fólk færi ekki að hætta að bjóða þeim lön eða heilsa þeim á götum úti. “the more the merrier” könnumst við allir við, reynum að breiða úr okkur í staðinn fyrir að hópast saman í litla (dare i say leiðinlega, því þeir verða það ef við höfum ekki úrval) hópa.