1. “Somebody decided to frag the big guy”
Sökum línunnar hér að ofan þá get ég ekki notað mitt raunverulega keppnisnick þegar ég er að spila ([PhD]Pressure) vegna þess að JBravo hefur sérstök réttindi og fær að skjóta svona línum á þá sem hann vill. Þetta er mjög pirrandi þegar allt í einu kemur maður sem admin inn á AQ þjónana á Íslandi og hann gerir breytingar sem felast í því að leikur sem maður hefur spilað í rúm 3 ár fer að breytast all verulega. Spurning hvort þú vilt ekki hafa petition um svona línur handa öllum bara eða er hugmyndaflug þitt svo mikið og húmorinn góður að þú reddar þessu bara sjálfur…? COMMON

2. “Leikmaður stökk fram af til að sanna ást sína til sumarstúlku”.
Bíðið við, ha? Er JBravo í QNI, er Sumarstúlka í QNI. Hvernig væri að hann myndi fara að átta sig á því að hann “Á” ekki serverinn, þetta er ekki QNI server, þetta er ACTION QUAKE í boði Símans Internets “for crying out loud” og það er óþarfi þar sem þú sem meðlimur QNI sért að koma með einhvern QNI-isma inn á þennan server.

3. Eftir allar þessar breytingar sem JBravo hefur verið að gera við serverinn hefur AQ orðið virkilega fucked hjá mér. Til að mynda þegar ég tengist í fyrsta sinn og er kannski búinn að vera á serverinum í 3 mín eða svo þá “minimizerast” Quake glugginn hjá mér vegna þess að það er búið að opna “Internet Explorer” og einhver síða hleðst upp. Þetta er mér aldeilis undarlegt en kannski ekki endilega JB að kenna. Einnig lendir maður oft í því þegar ég, notandi og viðskiptavinur Símans Internets í 3 ár tengist á serverinn via Símnet ISDN (5300100) laggast í svona 40 sek og stundum frýs alveg og þarf að reconnecta þótt að minimum resources á vélinni minni séu við störf og litlu sem engu breytt á vélinni minni frá því áður því þetta er keppnisvél mín.

Sökum atriða 1 og 2, legg ég til að breytingar JBravo og admin réttindi á serverinum verði alvarlega endurskoðuð og jafnvel tekin af honum.

Þetta er orðið of persónulegt og maðurinn hefur engin réttindi á að gera leikinn svona eins og hann er orðinn einungis vegna þess að þetta er bara fyndið. Ég veit að það verður amk eitt af hans pointum í þessu.

Ég er búinn að ræða þetta við p1mpa Símnets, greinilega ekki hægt að ræða við Banditos enda rífur maður endalausan kjaft á serverinum ef maður commentar á eitthvað en þetta ræddi ég við Smegma í gær og taldi rétt að þið hinir sæuð þetta líka.

Virðingarfyllst,
[PhD]Pressure<BR