Mig langar bara að segja skoðun mína á þessu cs / quake dæmi.
Ég verð að segja að ég er bæði feginn og svekktur yfir hversu margir (flestir einhverjir litlir krakkar sem halda að þeir séu ekta tölvu-gúrúar vegna þess að þeir fengu tölvu í afmælisgjöf) spila cs. Ég er feginn að flestir eru af þessum krökkum eru í cs vegna þess að guð megi hjálpa oss ef allir þessir krakkar fara að fylla servera i q3 og keppast um að vera með sem mest litríkust og flashandi nick, ekki fallegt. Og þar að auki væri alveg óþolandi að fara inná servera með allar þessar móðganir “kona, f00l, n00b, o.fl.” sem kæmu frá svekktum krakka-asna vegna þess að hann var tekinn.
Það sem að ég er svekktur yfir er hversu alltof ofmetinn cs er, það tala allir um hvað þetta sé svakalega bestastur leikur ever, og það eru allir elite sem spila hann, ekkert er jafn töff eins og að taka einhvern i “head-shot” sem er einhvert fáránlegasta feat. ever í leik. En þetta á alls ekki við alla, það eru margir örugglega sem eru mjög góðir í cs og eru að leggja sig fram í spilið og allt það, þannig eg er alls ekki að setja útá alla sem spila cs. Ég held að allir vita þetta vel sem eg var að segja, mér bara fannst ég varð að segja þetta (það er líka svo lítið að gerast herna á quake). Þannig ég bæði vona að þessir krakkar átti sig á að cs er ekkert svona góður leikur, og ég vona á móti að þeir haldi sig í cs.
“we are brothers