Kæru Hugar.

Nú er Smell 1 / 03 lokið og ekki til mikillar undrunar þá pakkaði b3nni Q3 keppninni saman og rúllaði henni upp líkt og heitri pönnuköku og smjattaði á henni með glott á vör.

Nú hefur Smellur verið haldin 15. sinnum og b3nni hefur unnið Q3 keppnina oftar en fingur mínir geta talið. Ætlar engin að fara að mæta á og sýna honum smá challenge. Eitthvað rámar mig í að einhver Murk-ari hafi flengt hann ekki fyrir löngu. Við mönum þig ónefndi Murk-ari að stíga fram, mæta á næsta Smell og flengja hann :).

Það hljóta að vera til einhverjir þarna úti sem geta stöðvað þennan MAD-MAN.

kv,

MuZZi.