hæhæ… ég er ein af þeim MJÖG fáu stelpum í AQ og ég bara verð að spurja að nokkrum hlutum og ég vona að það nenni einhver að svara mér. Ég gæti reyndar spurt vini mína en þeir hlægja alltaf bara að mér, langar frekar að einhverjir ókunnugir hlægi að mér :) Málið er að ég er algjört n00b í þessu og ég kann eiginlega ekkert fyrir mér í aq. Ég spreyja bara eins og n00b í cs :) það segja vinir mínir allavegana, ég prófaði meira að segja cs og það var alveg skammað mig fyrir að reyna að hoppa út um allt og spreyja á ferð ;) ég fattaði ekkert hvað var að þessu. Enjá.. það sem ég ætlaði að spurja, og það sem er búið að brenna alveg í huganum mínum síðan ég heyrði um aqctf, hvað þýðir þetta allt og hvað er aqctf, hvernig virkar það og svona, ég er ekki að fatta öll þessi consept (t.d. hvaða flag er verið að tala, það sem ég sé fyrir mér er einhver einn kall sem nær einhverju flaggi og reynir bara að vernda það):
1. aqffa <- hvað er það og afhverju er það svona leiðinlegt?
2. aqtp
3. q3tdm
4. aqctf
5. RQ3-TP
6. ctb
7. rq3
8. rq3tp
9. engin powerup <- hvað er meint með að það sé engin powerup í leiknum?
10. Semsagt EKKERT sem getur látið flag carrierinn lifa “endalaust” <- hvaða flag carrier?

mig langar bara að geta allvegana íhugað að fara á næsta skjálfta og spilað einhvernvegin aq ;) veit að mér á ekki eftir að ganga vel, eeeen maður reynir samt. Vonandi sér einhver þetta bara sem smá challenge eða bara nennir ekki að standa upp að fara að pissa og það er ekkert að gerast á irc. (hver kannast ekki við það ? :) well.. hittumst á irc, bæj