Hibb.

Það er svo langt síðan ég skrifaði eitthvað hérna að ég er búinn að gleyma hvernig á að skrifa…
En, skrifað skal samt….

Ég sakna þess alveg rosalega að getað bullað.
Ég gat bullað á minni heimasíðu og það var gaman, þangað til fólk fór að taka þessu alvarlega.
Ég gat bullað á Quake korknum (murk og simnet), þangað til allir ákváðu að fara á huga…
Allt í einu, fannst sumum þetta of mikið og ætluðu að kæra…
Já nei, kæra hvað ?

Ég hætti með heimasíðuna, en ég hætti ekki að bulla, Ég fór að bulla á “huga”…

Vááá, það voru margir sem lesa póst eftir fávita eins og mig.. Ég meina hvað er fólk sem spilar ekki quake
að lesa þetta !!, ekki veit ég ástæðuna og ekki veit ég afhverju ég er að lesa “gæludýr” :)

Jú, ég veit það….Þetta kemur á forsíðu Huga og þar geta allir lesið allt með einu klikki.

Þetta drepur, það er fúlt að amma sem hefur áhuga á blómum sé að lesa eitthvað bull eftir mig,
ég meina ég er ekkert að reyna að gera hana “happy”…

Jæja, Quake…….

Já quake, ég er að spila quake aftur eftir smá pásu, snilldar leikur.
Ég fór að spila Counter Striker, en OMG .. Hvað er að þessu fólki sem er að spila CS ?
Fávitar upp til hópa…Alveg furðulegt, hve mörgum illum nöfnum er hægt að kalla einn mann :)
Ég lærði samt nokkur ný orð þar, það var gott…..:)

*Núna er vandamálið mitt það að ég er að reyna að vera kurteis og ekki stíga á neinar tær*

Ég hef verið að spila “CA” eða Clan Arena…

Og ég hef nokkrar spurningar :)

1. Afhverju erum við að spila sama borðið aftur og aftur ?
2. Afhverju erum við að spila sama borðið aftur og aftur ?
3. Afhverju erum við að spila sama borðið aftur og aftur ?

Hvernig væri að prufa eitthvað nýtt ?

Málið með okkur íslendinga að við erum svo lokaðir.
Við neitum að prufa eitthvað nýtt, alveg sama hvað það er !!!
Ég meina, það kom snilldar “mod” út um daginn sem er alveg eins og AQTP !!
Það spilar það enginn lengur…. Afhverju ekki ? hvað er að ?

þetta er snilld að mörgu leiti, nema kannski CFG´in ykkar sýgur.
Í staðin fyrir að gefast upp, afhverju ekki að gera betri cfg ?

*uff, mér langar að dizza mann og annan en ég þori því ekki hérna :) *

Hugi er því miður fyrir alla, já bæði konur og kalla !! hahahahaahahaha


ok, afhverju er sama borðið spilað aftur og aftur í CA ?
og afhverju eruði ekki að spila Reaction Quake ?


That´s all :)

kveðja
X-Rated