Ein spurning: Hvað er að gerast?
Undanfarna daga hef ég (og fleiri) verið að fá mun hærra ping á skjálfta ég hef átt að venjast. Ég er með ADSL 256 hjá simnet, og hef vanalega fengið svona 25-35 í ping en fæ allt í einu núna 50-100 mjög rokkandi ping. Það væri fróðlegt að fá einhverjar skýringar á þessu (ég sendi fyrirspurn á quake3@simnet.is en fékk ekkert svar, svo mér datt í hug að vita hvort ég fengi einhver svör hérna á huga). Ef einhver veit hvað er á seyði, please share =)