Já.. Um daginn dreymdi mig ansi skemmtilegan draum. Mig dreymdi Quake3, Counter-Strike, AQ og Unreal Tournament fléttu. Ég skil ekki alveg hvernig það gekk upp en það var ansi sniðugt.


Ég var appelsínugulur AQ kall og var að spila assault map í UT (eyðileggja base óvinanna) og ég þurfti að kaupa mér railgun.
Ég hleyp út úr mínu beisi og fyrir utan hurðina stendur móðir mín með rocket launcher, móðir mín var ekki appelsínugul, hún var í L33t krew búning úr CS. Hún skýtur á mig en þar sem ég var með 100 í armor dey ég ekki heldur flýg upp í loftið og festist í loftinu. Og móðir mín og vinir mínir sem voru þarna líka verða reiðir og öskra “HAX, HAX, HAX” á fullu.
Ég verð hálfleiður og segi þeim að ég hafi skotist þangað óvart og að ef ég hoppi niður þá deyi ég. En þá verða þau ennþá reiðari og fá einhvern admin til að kicka mér.

Mér er kickað og þá er ég, að ég held kominn í eitthvað svartholt. Allt svart í kringum mig og enginn þarna nema ég. Ég ráfa um svartholið og næ svo að connectast aftur inn á serverinn.
Ekki er tekið vel á móti mér þar. Ég enda með mömmu í liði og hún með þennan rocket launcher sinn, öskrar eins og brjáluð á mig “HAXARI!” og skýtur mig svo með rocket launchernum og ég dey og er svo kickað aftur.

Þessa nótt komst ég ekki aftur inn á server.