Ég og nokkrir aðrir vorum að spila Quake II á LANi í skólanum. Við vorum á q2dm1. Ég var búinn að fá 41 frag án þess að drepast þegar hið óhugsandi gerðist. EINA STELPAN SEM VAR Í QUAKE OG HAFÐI ALDREI PRÓFAÐ HANN ÁÐUR DRAP MIG!! Ég var að fara að ná í supershotgun þegar hún spawnaðist hjá mér. Hún hljóp að supershotguninni náði henni og skaut mig. Ég sem var með 25 health drapst auðvitað strax og ég hef verið í sjokki síðan. Ég er að hugsa um að sleppa skólanum á morgun bara. Mesta niðurlæging sem nokkur getur hugsað sér er að vera drepinn af stelpu í tölvuleik. Ég sem hef alltaf verið bestur af í bekknum í Quake. Finnst ykkur ég eiga skilið að spila Quake áfram? Hafið þið verið drepnir af stelpu og ekki dáið úr þunglyndi?
Ekki taka þetta neitt illa stelpur.