Búið er að skrá íslenska landsliðið í ClanBase Nations Cup.Q3, en það má líklega kalla það Evrópumótið.

Captains fyrir landsliðið eru ég og maxium, fyrst var planið að hafa Scorpa, en hann sagðist ekki hafa tíma. Þessvegna ákváðum við að bjóða okkur fram, og enginn annar gerði það og erum við því captains.

Maxium mun sjá um að leggja loka hönd á íslenska liðið, en ég um að skipuleggja leikina, samt mun þetta eitthvað skarast að sjálfsögðu.

Ekki er komin dagsetning á það hvenær mótið byrji, né riðlar.

Við erum búnir að sigta út 10-14 manns sem verður talað við á næstu dögum, og þeirra áhugi athugaður, vonum að sem flestir hafi áhuga á þessu, þar sem allar sterkustu þjóðirnar mæta til leiks(Svíþjóð, Þýskaland, Danmörk, Bretland etc.etc.).

Ekki er komið á hreint hvar við munum spila, en vonandi skýrist það bráðlega.