Eftir að hafa endurheimt skjálfta4 og 5 úr helju (Skjálftamótinu) þá fór ég að reyna að setja þær upp aftur eins og þær voru áður en þær fóru í mótið. Mundi þá að flestir eru orðnir þreyttir á þessum möppum sem voru í rotation. Því settist ég niður og bjó til nýtt. Það er:

urban, teamdepo, teamjungle, aggression, jungle1, armyterr, urban, lighthouse, teamjungle, beer og deepcanyon.

Mapvalið er ekki alveg af handahófi. Í fyrsta lagi er það byggt á mínum (frábæra? :-) smekk og svo því sem þið hafið verið að vóta á S4 og S5 undanfarið.

Áður en menn taka upp eldvörpurnar vil ég benda á að þetta er ekki greypt í stein og ábendingar og umræða um þetta er vel þegin.

Svo fjölgaði ég grensum í 2.