Þar sem Euro2000 er nýafstaðið þá er ekki að sökum að spyrja; allar húsmæður í vesturbænum eru brjálaðar yfir því hversu mikið var sýnt frá mótinu. Mennirnir þeirra hafa greinilega ekki staðið sig í að þrífa meðan leikirnir voru í sjónvarpinu en það virðist einmitt vera lögbundinn tiltektartími hjá íslensku kvenfólki.

Af hverju er ég að blaðra um fótbolta í grein um Quake? Jú, fótbolti er íþrótt og að sumra mati er Quake það líka. Ég man reyndar ekki hvernig skilgreining á íþrótt er en eitthvað fjallar skilgreiningin um æfingu og keppni í einhverju sem reynir á andlega og líkamlega getu einstaklinga. Skák er flokkað sem íþrótt og ekki reynir sú íþrótt mikið á líkamlega æfingu svo afhverju ekki Quake?

Bæði er sýnt frá skák og fótbolta í íslensku sjónvarpi en ennþá hefur lítið sést frá Quake. Fjöldi manns á Íslandi stundar þessa íþrótt/áhugamál og haldnar hafa verið fjölmargar keppnir. Ísland á landslið í fótbolta, skák og meira segja á Ísland (óopinbert) landslið í Quake. Meira er samt rætt um landsliðið í fótbolta, þar sem hátindur liðsins var að gera jafntefli við heimsmeistara Frakka. Landslið Íslands í Quake hefur hins vegar gert góða hluti og eru liðsmenn þess í heimsklassa.

Þá er bara spurningin, hvenær mun einhver íslensk sjónvarpsstöð átta sig á gæðum og skemmtanagildi íslenskra Quake-keppna og ríða á vaðið? Skjár1 hefur verið dugleg(ur) við að senda út óhefðbundið sjónvarpsefni og ég veðja því á að Skjár1 verði fyrsta íslenska stöðin til að sjónvarpa Quake.

Þá fá íslenskir karlmenn eina afsökun í viðbót til að sleppa við þrif á heimilum.