Ég skammast mín fyrir að sjá hvernig eldri spilarar koma fram við sér yngri. Þegar strákar eins og danger ofl. eru að flengja ykkur í duel þá er það hin mesta óvirðing gagnvart þeim að aftengjast fyrirvaralaust. Hvernig væri að þið sem stundið þetta mynduð hætta þessu? Væri ekki nær að klára leikinn og reyna að snúa taflinu við eða bara læra af þessum strákum því þeir hafa ekki orðið svona góðir nema að klára sína leiki og æfa sig gegn ykkur sem VORUÐ betri en þeir. Það eru ekki allir sem gera þetta en því miður alltof margir.