Í kvöld var útileikur við austurríki á þeirra server. Þar sem ekkert hefur enn gerst í þjálfaramálum valdi ég einn úr landsliðshópnum, Van-GoGh (ex QNI), sem liðsstjóra.

Vanni, eins og liðsstjórar fyrri leikja hafði frjálsar hendur í leikmannavali og hann valdi með sér þá Core, Mud, Reaper og Freud.

Áður en menn eipa útí Vanna fyrir að fá Freud til að spila þá var það vegna þess að hann náði ekki í neina úr landsliðinu sem gátu spilað fyrir heimanámi eða öðrum önnum.

Fyrra mappið var Urban og það fór 19 - 2 fyrir okkur.
Seinna mappið var Actcity3 og fór það 8 - 5 fyrir okkur.

Í stuttu máli sannfærandi sigur.

Það má til gamans nefna að síðustu 3 eða 4 roundin á urban spiluðu austurríkismenn sex á móti fimmmenningunum okkar :)

GG strákar.