Ég er auðvitað mjög ánægður með viðtökurnar sem RQ3 hefur fengið hjá landanum en það eru nokkur atriði sem mig langar að nefna við ykkur :)

#1: Nei það er ekki teamplay mode í RQ3 eins og er í AQ2. Teamplay mode er í vinnslu og kemur vonandi fljótlega.

#2: Moddið heitir RQ3 (Reaction Quake 3) en ekki RAQ3.

#3: Ég demóaði á skjálfta Urban og Teamjungle. Þessi möpp eru ekki tilbúin og því var þeim ekki dreyft með Betu 1. Ég má ekki gefa út Alpha quality dót.

Það er von mín að þið takið þessi svör gild og hættið að spyrja mig á irc, AQ2 eða RQ3 serverunum :)