Í kvöld var tekist á við þjóðverjana á þeirra server. Liðið í þetta skipti var:

Reaper, Core, Van-GoGh, Anti og Slith

Spilað var á urban og cliff2.

Urban var val okkar liðs og þjóðverjar spiluðu það mjög “hægt” og fóru leikar þar 6 - 5 fyrir okkur.

Cliff2 var þeirra mapp (á þeirra server) og fór 28 - 10 fyrir þeim.

Over all, sigur til þýskalands. Þeir ströttuðu vel og völdu möppin sniðuglega m.t.t. packetlossins sem okkar menn voru með.
Einnig voru þeir sniðugir að fara sér “hægt” (lesist campa) á okkar mappi :-)

Er að verða komið nóg af þessum útileikjum!! :) Næst er IS vs. Whales á okkar serverum :)

Ykkur til fróðleiks, þá er JB pissed útí “frændur” okkar svía sem neyddu okkur til að spila á þeirra server sem er svo slæmur að m.a.s. þeir gátu ekki spilað á honum. JB mun launa þeim greiðann ;)