Það styttist hratt í að EuroAQ fari af stað (held það sé um nk. helgi) svo ég verð að taka af skarið.
Miðað við þessi 97 svör sem hingað til eru komin á fyrri greinina, þá verður fyrirkomulagið þannig að við búum til 5 manna nefnd sem sem fimm klön senda einn mann í. Þessi nefnd velur svo í liðið.

Clönin eru: MaxTac, HJ, QNI, DON og mAIm. Þessi clön eru valin með tilliti til aldurs þeirra og árangri á síðasta skjálfta.

Nefndin velur amk 10 menn í heildarliðið og raðar þeim svo niður í lið eftir því hver spilar hvenær.

Ég tel einnig að best væri að þessi nefnd væri valin í dag, ef mögulegt er, og hefði sinn fyrsta “fund” á irc í kvöld. T.d. á #EuroAQ.is kl 22:00 ?