Ég hef sett Skjalfta5.simnet.is upp aftur eftir vistina á síðasta skjálftamóti. Skjálfti5 er núna svona:

27910: Clanmatch
27911: 3ja liða leikur.
27912: Darkmatch
27913: AQ-CTF.

Þriggja liða leikurinn er alveg eins og venjulegt teamplay nema það eru 3 lið :)

Darkmatch er system þar sem leikurinn byrjar á degi, svo kemur kvöld (með takmarkaðri birtu) og svo kolsvört nótt. Svo morgun og svo dagur.

Í darkmatch er komin skipunin “flashlight” til að kveikja eða slökkva á vasaljósi.
Allir TNG serverar hafa skipunina “stats” sem gefur manni nýtingu skota og svo frv.

PS: hef verið að heyra utanað mér að fólk er að joina clanmatch serveranana meðan mötch eru í gangi og vilja ekki fara.
Það er auðvitað útí hött og það þýðir ekkert að klaga í mig eða aðra pimpa þegar ykkur er kickað af clanmatch server þegar match er í gangi.