ProMode kortapakki #1 hefur nú verið uppfærður á Skjálftunum, svo nauðsyn er að setja inn <a href="http://www.simnet.is/quake2/q3maps/ProMode/cpm_mappak1_new.zip">nýja pakkann [ 4.1MB ]</a>. Gott er að taka gamla map_cpmpak1.pk3 út úr baseq3 möppunni áður en þetta er gert.

Kort úr <a href="http://www.simnet.is/quake2/q3maps/ProMode/cpm_mappak2.zip">ProMode kortapakka #2 [ 8.6MB ]</a> fara nú að skjóta upp kollinum, svo vissara er að sækja hann einnig og setja inn.

Nú er bæði hægt að spila q3dm6 óbreytt og í tmp útgáfu á Skjálfta. Þetta er gert með /callvote map q3dm6 (orig) & /callvote map q3dm6tmp (tmp, duh!). Til að gera þetta kleift er nauðsynlegt að allir sæki og setji inn <a href="http://www.simnet.is/quake2/q3maps/tmp/q3dm6tmp.pk3">q3dm6tmp [ 1MB ]</a>.

Hér eru allnokkrar breytingar á ferð, og viðbúið að einhverjir örðugleikar láti á sér kræla. Spurningar má sem fyrr senda á <a href=“mailto:quake3@simnet.is”>mig</a>.

ps. Upp er kominn nýr Clan Arena tilraunaserver (kortaprófanir) á Skjalfti.simnet.is:27961. Hann mun einungis innihalda ný kort.

Kveðja,
Smegma