Þar sem ég sit hér í hægðum mínum og læt hugann reika fer ég að hugsa um líklega afreksmenn á komandi Skjálftamóti:

1on1: Þeir sem ég tel að séu líklegastir til að standa sig eru Fireal, Butch, asi, Reaper, otur, Antichrist, illbill, Glitch, zodiac og ArNi.
Af þessum má búast við Fireal, Butch og Anti á topp 5.
DMTP: Ice, Murk oldies, Murk teens, fallen og ThC líta út fyrir að koma helst til greina hér. Á góðum degi gæti ThC til dæmis alveg unnið hvaða lið sem er. Ice hafa einnig verið að taka Murk í æfingaleikjum og svo kæmi manni ekkert á óvart þótt fallen næðu langt. Þó verða Murk að teljast líklegir sigurvegarar en leiðinlegt þykir mér að evolution mæti ekki til að tear shit up.
CTF: Murk og ice í úrslitum?
AQTP: Maxtac í þriðja eftir tap á teamjungle, PhD í öðru og QNI vinnur loksins.
CS: Hate stútar IRA í úrslitum.